29.6.2007 | 12:03
Útkall Rauður
Hann Gulli okkar er búinn að vera sigla á skútum í Nauthólsvíkinni í sumar, núna í byrjun vikunnar fór hann á framhalds námskeið hjá Brókey. Á þriðjudaginn 26. var hann að æfa sig og var víst búinn að hvolfa nokkuð oft og orðinn svolítið þreyttur greyið á að snúa skútunni við og tók það svolítið lengri tíma í eitt skiptið, nema þá hefur einhver Kópavogsbúinn hringt í 112 og tilkynnt um skútu sem hvolfdi og barn í sjónum. Fékk m.a. Hjálparsveitin hans Einars Þórs "Útkall Rauður" og var bátaflokkurinn kallaður út.
Ekki reyndist nein hætta á ferðum þar sem tveir kennarar fylgdu Gullus eftir á Zodiak slöngubát og voru honum til halds og traust.
Kæru vinir hafið það gott í sólinni og njótið hennar í botn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.